01.11.2013
Hollvinasamtök Reykjalundar verða stofnuð 02.11.2013
Hollvinasamtök Reykjalundar verða stofnuð nk. laugardag, 2. nóvember, að viðstöddum góðum gestum á hátíðarfundi á Reykjalundi í Mosfellsbæ kl. 14.
Undirbúningsaðilar hvetja Mosfellinga og landsmenn alla til að ganga liðs við hollvinasamtök stærstu endurhæfingarmiðstövar Íslands sem þjónar landsmönnum öllum. Á Reykjalundi hafa þúsundir landsmanna náð heilsu á ný eftir áföll í lífinu. Meðalaldur sjúklinga er einungis um 50 ár og má því ljóst vera hversu mikilvægu samfélagshlutverki Reykjalundur gegnir í endurhæfingu sem leiðir til þess að einstaklingar komast á ný út á vinnumarkaðinn.
Dagskrá:
- Ávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar
- Kynning á starfsemi Reykjalundar
- Lög hollvinasamtaka: Tillaga að skipan stjórnar, árgjald
- Tónlistaratriði
- Fundarlok
Fundarstjóri verður Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður
Veitingar í fundarlok.
Allir velkomnir.
Til baka