HAM - Handbók
Margir glíma við þunglyndi og kvíða á ýmsum stigum og allir kannast við
að verða stundum daprir eða að kvíða fyrir erfiðum aðstæðum. Ef
einkennin eru mjög alvarleg eða langvinn og eru farin að hafa víðtæk
áhrif á daglegt líf þarf að leita aðstoðar fagfólks. Á fyrri stigum
getur sjálfshjálparefni komið að góðu gagni og einnig til að viðhalda
bata. Í hugrænni atferlismeðferð eru kenndar aðferðir til að takast á
við þunglyndi og kvíða sem fólk getur gripið til hvenær sem á þarf að
halda. Markmiðið er að draga úr neikvæðum hugsunum og auka virkni.
Áttunda útgáfa bókarinnar kom út árið 2017 á vegum geðheilsusviðs
Reykjalundar, í ritstjórn voru Inga Hrefna Jónsdóttir, Rósa María
Guðmundsdóttir, Vera Siemsen og Þórunn Gunnarsdóttir. Allt efni
bókarinnar er einnig aðgengilegt á HAM-vefsíðunni.
Verð:6.563 kr.