Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi. 

Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

Reykjalundur

,,OG HVAÐ SVO?“

Samstarf og samfella í verkjaendurhæfingu á Íslandi Ráðstefnudagur Reykjalundar 2026, 9. mars 2026 á Grand Hotel   Það var ánægjulegt að sjá saman kominn hóp fólks úr ólíkum áttum heilbrigðis- og velferðarkerfisins sem á það sameiginlegt að vinna að einu af mikilvægari viðfangsefnum...

Reykjalundur

„Reykjalundur er mín lífsbjörg“

Á vef Morgunblaðsins er viðtal við einstakling sem segir frá reynslu sinni af endurhæfingu á Reykjalundi. Í greininni þakkar hún þann ómetanlega stuðning fagfólks sem þar er veittur. Reykjalundur óskar Erlu velfarnaðar í lífinu. Lesa má greinina hér...

Skip to content